Eitt lítið skrítið..
Lífið hér í vesturberginu gengur sinn vanagang.. Það samanstendur aðalega af gleði, drykkju, meiri gleði og já bara svona þessu venjulega.. Þykir alveg agalega vænt um sambýlinginn minn, ekki viss um að ég segji henni það nógu oft..

Mússí mússí..
-Vinnan er bara skemmtilegt og frábært fólk sem ég vinn með..
- Elva er komin heim frá útlöndunum, var búin að sakna hennar mikið..
- Fór á ættarmót um daginn og það var geggjað stuð..
- Fór líka á djammið um helgina og týndi símanum mínum, dugleg stelpa.. Síðustu símtöl úr honum voru í sjálfan mig!!
- Sem gerði það að verkum að ég þurfti að kaupa mér nýjan svo nú á ég 3G síma, en öll númerin horfin, algjör pæja..
- Sambýlingurinn ætlar að flýja borgina um helgina til að horfa á eitthverjar skeppnur hlaupa í hringi..
- Það þýðir að ég verði home alone..
- Er að melta það hvort maður eigi ekki að skella sér á Vopnafjörð um vopnafjarðar dagana og knúsa allt þetta lið þarna fyrir austan, held að það sé klárlega málið..
Ég kíkti á fb.is um daginn og tjékkaði hvenar skólinn byrjar í haust.. Komst að því að hann byrjar bara alls ekki í haust.. Heldur í sumar, stundartöflu afhendingin er 18. ágúst, já sæll mánuðurinn rétt hálfnaður!!! EN það er nú í góðu lagi, hef ennþá einn og hálfan mánuð til að undirbúa mig andlega og líkamlega fyrir þessa önn.. Býst við því vesta en vona það besta
Það er rétta hugarfarið er það ekki? Er reyndar bara orðin spennt að byrja aftur og læra nýtt þó svo þetta séi erfiðasta önnin að þá er allt er hægt með réttu hugarfari (hljóma svolítið einsog amma)..Annars er ekki hættulaust að lifa þessa stundina, margt sem þarf að varast einsog..
* Ísbirni - Maður er hættur að ganga í hvítum fötum þar sem það yrði öruglega hringt og tilkynnt um ísbjörn í bænum!!
* Ólétta karlmenn sem hafa farið í kynskipti aðgerð - ekki myndi ég vilja lenda á einum svoleiðis, það er náttúrulega ekki í lagi með sumt fólk..
* Að vanda sig ekki við að eignast börn - Getur fætt barn með AUKA typpi á bakinu!!
Úff, þetta er orðið alltof langt.. Og bara svo þið vitið það að þá er kurteisi að kvitta fyrir forvitnina..
Er einhver sem les ?
Beggus rónus..
13. maí !!
Annað mál er hinsvegar það að ég gerði uppá bak í þessu prófi en það er nú bara kennaranum að kenna, lagði áherslu á allt sem var ekki í prófinu.. og þegar hún birtist í stofunni þar sem allar stelpurnar voru að hugsa um hvað þetta væri erfitt próf, skælbrosandi einsog ég veit ekki hvað og spurði "er ekki allt í góðu"? Hún var held ég bara heppin að fá ekki einnáann
En nú er bara að biðja til guðs um að einkunnirnar verði til sóma, fæ að vita það allt á slaginu 12 mánudaginn 19. maí.. Skil ekki þessa bið alltaf hreint, hehe 
Var að passa 2 börn, 2 kanínur, hund og kött um helgina.. Það var bara mjög gaman og held ég að ég sé bara tilbúin í móðurhlutverkið, vona bara að pabbi sé alveg öruglega tilbúinn í að verða meiri afi og Dóra tilbúin að hjálpa honum að passa skrípin þegar ég þarf að fara á djammið og þess háttar.. Sinna lífinu..
En nú er kjellan bara komin í frí þangað til 2. júní og þá byrja ég í nýju vinnunni, fékk vinnu á skrifstofunni hjá Lyfju
Þannig að annað sumarið í röð sit ég fyrir framan tölvu og vinn á besta vinnutíma í heimigeimi, held að þetta verði bara alveg ljómandi fínt sumar.. Við ætlum að hafa það svo gott hérna í vesturberginu, drekka bjór saman í blíðunni og hafa það bara geðveikt næs og það er að sjálfsögðu öllum boðið á pallinn
Hinsvegar finn ég það á mér að þetta verði sumar býflugunar.. Það er ekki verandi úti fyrir þessum skrímslum, en við látum okkur nú hafa það.. Fór í klippingu áðan og er svo að fara í handadekur á morgun.. Búin að fá lánaða línuskauta svo nú á að hreyfa á sér spekið, veitir ekki af.. En ég má samt ekkert vera að þessu, er svo skelfilega upptekin í fríinu mínu þannig að ég verð að þjóta.. Læt heyra í mér ef ég þarf ekki að drekkja mér í sorgum yfir einkunnunum, en væri þó gott tilefni til að djamma
29. apríl 2008!
Já sæææælll, aaaaðeins nokkrir dagar síðan ég bloggaði síðast.. Ætlað að vera súper dugleg og koma með eitt 
Það er sko allt það besta að frétta héðan úr gettóinu.. Sambúðin með henni Elvu minni gengur einsog í sögu ;) Við erum að vísu oft að fá einhverja óvænta gesti inní hús einsog smábarna kóngulær, svona hundrað stykki eða svo með tilheyrandi vefi á örskömmum tíma en þær fengu að kafna í hárlakki og dvelja nú í ryksugunni, svo kíkti ein randafluga á mig í gær.. Ég flúði herbergið en kisa reddaði þessu, lék sér við hana þangað til hún datt niður dauð, hún dvelur líka í ryksugunni, þetta fer að verða hálfgerður kirkjugarður þarna í pokanum.. En Grettir ætlar að redda þessu fyrir sumarið, láta eitra fyrir þessum gestum.. Svo má ekki gleyma henni (ó)Fríðu á efri hæðinni sem kemur reglulega i heimsókn til Ronju minnar.. þetta á að vera blandaður persneskur köttur (svona klesstur í framan) en líkist helst svíni, hann hrýnir þegar hann þefar af manni og hljóðin í henni líkist ekki ketti fyrir 5 aura!!
Skólinn hjá mér er búinn, nú taka við 4 próf og þá er önnin á enda ;) Ætla nú að vera dugleg að læra þangað til þau byrja og raðast þau bara fínt hjá mér, er í prófum 5. , 7. , 9. og 13. Maí
Þetta var skemmtileg önn en hlakka voða til sumarsins, held að það verði ótrúlega skemmtilegt með tilheyrandi útilegum og skemmtilegu fólki
Ég er að vísu ekki ennþá komin með vinnu.. Alltof lítið spennandi í boði og ef það er spennandi að þá er það framtíðarstarf :s Ætli ég endi ekki með að vinna á heimili fyrir heimilislausa karlmenn sem ég sá auglýst.. Fannst þetta skemmtileg auglýsing, þeir eru á heimili en eru samt heimilislausir.. Þetta gæti dregið úr mér að gerast róni.. Annars er ég á góðri leið með það.. Svo rakst ég á skemmtilegt síðu um daginn sem heitir www.bathmade.is ég las hana alla og ég kunni hana betur en allt sem ég er búin að læra yfir heila önn, spurning um að gerast bara sjálfstæður dreifingaraðili af þessari snilldar vöru sem er vatnstyppastækkari, agalega skemmtilegt allt saman.. Er meira að segja búin að redda mér sýningar modeli og allt haha :D En ég finn mér vinnu, hef engar áhyggjur af því
Elva bauð mér með á hokky æfingu í gær, ég skellti mér með og sé sko alls ekki eftir því.. Þetta var þrusu fjör og er ég nú með all svaðalega strengi allstaðar.. Labba einsog gamalmenni, en það segir manni að maður hafi allavega reynt eitthvað á sig
Svolítið sveittar en alveg ómótstæðilega sætar..
Svo verð ég nú að setja tvær frá einum af göngutúrnum sem við fórum í um daginn..
Fundum þessa rétt hjá kasko og gerðum ýmsar kúngstir með hana..
Svo fórum við á leikskóla og veguðum, róluðum og renndum okkur, erum kannski ekki alveg í lagi..
Jæja, ég ætla að hætta þessu og halda áfram að læra.. Sjbbý
Berglind gamalmenni!
Snyrti dömu djamm !!
Hæ! Djöfull er ég ánægð með ykkur að vera svona dugleg að kommenta, nú þurfið þið aðeins að halda þessu áfram..
Ég er bara ofboðslega kát þessa dagana.. Síðasta vika var reyndar frekar strembin þar sem að það voru 5 próf á 4 dögum og mikið að læra undir þau en allt hófst þetta nú á endanum eftir vinnu afsal og leiðindi (vinnuafsal er öruglega nýtt orð la Berglind) en ég er semsagt hætt í Sælunni, læt nú ekki vaða svona yfir mig á skítugum skónum og allt drullugt, ég er í ruglinu! Skulum ekkert ræða þetta hér.. Eftir þessa frábæru viku ákváðum við snyrtidömurnar að sletta ærlega úr klaufunum á laugardagskvöldið og var það sko gert!! Fórum í party til Kristrúnar og þar gerðum við bollu og jelly (sem varð bara alls ekkert jelly) en áfengt var það og gerði alveg sitt gagn ;) Pöntuðum svo pizzu frá Dominos og held að gaurnum sem kom með þær til okkar hafi ekki skemmt sér jafn vel og við því við vorum komnar vel í það þegar þarna var komið við sögu hehe.. Fórum síðan niðrí bæ á Apótekið og skemmtum okkur prýðilega.. Týndum svo hvor annarri seinna um kvöldið þannig að ég hitti Elvu og Rögnu og dönsuðum við af okkur rassgatið á gauknum, ógeðslega gaman bara.. Það munaði að vísu litlu að Elva greyið yrði hauslaus þetta kvöldið því að það var ein stelpa sem lyktaði svo helvíti illa (hef aldrei fundið eins svakalega ógeðslega, súra, gamla svitalykt.. ) og allir að kafna í kringum hana og hún bara veifandi krikanum einsog henni væri borgað fyrir það en ég opnaði töskuna mína og var með þennan svaka fína eyði og Elva fór til stelpunnar og sagði að þegar að maður lyktaði svona illa að þá væri alveg tilvalið að nota svona og sýndi henni svitalyktareyðinn og stelpan var næstum búin að drepa hana með augnarráðinu :o Svo kom eitthver strákur og eiginlega hélt henni niðri meðan hún stappaði einsog geit.. En við komumst nú alveg heilar útur þessu, annars var allt alveg brjálað þegar að við fórum út.. Maður stunginn með hníf á djamminu við hliðiná, stelpu hrint niður tröppu á gauknum fyrir framan okkur og svo bara 5 löggu bílar úti og stelpa brjáluð að sparka í bílinn og bara bölvað vesen á þessum fyllibittum nú til dags.. Gott að ég er svona þæg svo það þurfi enginn að hafa áhyggjur
Við Elva vorum ekki komnar heim fyren rúmlega 6 eftir vel heppnaða nótt og kúrðum við svo saman heima hjá henni.. Held að ég hafi bara sjaldan skemmt mér svona vel og er ég rosa spennt fyrir næsta svona djammi enda hressar stelpur hér á ferð..
Nenni ekki að pakka dótinu mínu niður fyrir flutninginn, samt voða spennt að flytja!! Svo skil ég ekkert í því afhverju hreingerningarparið pabbi og Dóra eru ekki búin að tilkynna komu sína hingað á nesið til að þrífa fyrir mig íbúðina einsog síðast.. Þau voru svo agalega ánægð með það hvað ég væri mikill snyrtipinni ehe..
Jæja, ég er víst að fara í próf á morgun og var í prófi í morgun (þetta endar bara í ruglinu) og gekk alveg frábærlega vel einsog vanalega bara.. En þá veitir víst ekki af hvíldinni svo það er kannski best að þjóta uppí rúm.. Bfúmm.. Heyrðu þið hvað ég var fljót ? Ég fór nefninlega í ræktina í dag til að hreyfa af mér bjórana frá laugardeginum.. Batnandi mönnum er best að lifa :)
Berglind róni er enginn dóni 

Berglind og Berglind hrikalega hressar :)

Og við Anna heldur betur búnar að æfa okkur í pósinu ;)

Orðnar frekar hressar..
Miklu fleiri myndir á myspaceinu mínu og ekki nema 40 á leiðinni á morgun ;)
Pólverjar hér og Pólverjar þar!!!
Jæja, þá er kominn tími á kvart.. Við Elvurnar fórum í bónus í Smáratorgi á laugardaginn.. Við vorum að kaupa í Pítu og með því og það var varla til neitt 2 ltr gos svo ég labbaði að einni stelpu og spurði "eigiði til 2 ltr appelsín?" og hverju haldiði að hún hafi svarað? Jú hún sagði bara "PÓLLAND" og labbaði í burtu.. Var ég eitthvað að spurja hvaðan hún væri eða, nei ég hélt ekki!!! Við röltum þarna í hringi og sáum bara ekki nokkurn einasta starfsmann í nokkurn tíma þangað til ég sá glitta í einn, og viti menn, pólverji... Við fórum og völdum grænmetið og þar var annar, ég spurði hvort að hann myndi tala íslensku og hann svaraði "ég skilja ekki mikið íslenskar" en skildi þó það sem ég spurði hann um og gat hjálpað okkur.. Þegar við vorum svo búnar að versla fórum við á kassann og þar var PÓLVERJI.. Hún gat sagt BOKA (sem á að þýða poki) og benti svo bara á upphæðina.. Við báðum um að skipta í þrennt með smá tákmáli og þremur kortum og hún skildi það.. Ég reiknaði fyrir hana hvað það væri á mann og hún renndi Elvu korti í gegn og fór það bara vel og svo renndi hún mínu, GLEYMDI að setja upphæðina og tók restina á það kort!!!! Svo brosti hún einsog hálviti og rétti okkur miðann.. Og þetta er í annað skiptið sem ég ætla að láta skipta hjá Pólverja og það er allt tekið útaf mínu korti!! Ég er bara hætt að skilja þetta samfélag.. Það hlýtur að vera hægt að kenna þessu fólki íslensku áðuren það fer í svona afgreiðslu störf.. Mér þætti gaman að vita hvernig fólkið útí póllandi myndi bregðast við ef að ég myndi flytja þangað og tala bara íslensku og vera borgað fyrir það að enginn skilji mig og ég skilji ekki aðra.. Ég er svo aldeilis hneyksluð..Annars eru Pólverjar sennilega ekkert verra fólk en hvað annað.. Finnst bara svo skítt að setja svona fólk í afgreiðslustörf sem geta ekki haft nein samskipti við viðskiptavini.. En svona er þetta, íslendingar nenna kannski bara ekki að vinna þessi störf..
Þorrablótið á Vopnafirði var sko snilldin ein.. Alveg hrikalega gaman sko.. Til alveg fullt af myndum á hinum og þessum síðum af því en ég var reyndar ekki alveg eins dugleg við myndavélina.. Líka alltaf jafn gott að komast í sveitina til pabba, Dóru og gríslinganna og hafa það gott 
Ég gerði heiðarlega tilraun til að kíkja edru niðrí bæ með Inbibjörgu (sem var reyndar alls ekki jafn edrú og ég).. Við byrjuðum á því að fara í partý til Kötu sem var alveg ljómandi skemmtilegt.. Svo fórum við niðrá hressó.. Það var ágætt sko, ég hef bara ekki skap í fullt fólk þegar að ég er að reyna að skemmta mér edrú.. Við dönsuðum þarna og var voða gaman, svo labbaði ég á eftir Imbu inná klósett og á miðju dansgólfinu króaði mig einhver gamall perri af og fór að nudda sér uppvið mig.. Án þess að hugsa snéri ég mér við, sló hann utanundir og ýtti honum í burtu !!!! Ég hugsaði svo ekki eitt andartak því mér fannst þetta svo ógeðslegt að það hálfa væri hellingur.. Hefði látið hann heyra það ef ég hefði verið i stuði til þess, þetta sagði honum allaveg að halda sig frá mér..
Alveg hrillingur að sjá þessa gömlu perra vera að dansa við ungar stelpur og finnast ekkert athugavert við það.. Alveg ÓGEÐSLEGT !!! Ég skutlaði síðan Elvunum niðrí bæ á laugardagskvöldið og var alveg brandari að sjá hana Kristínu.. Skulum ekkert ræða það meir neitt.. 
Var að vinna í Pier um helgina og var það bara gaman.. Er svo að fara í 2 próf í næstu viku og fyrir annað prófið þarf ég víst að kunna alla heimsins vöðva í efri hluta líkamans, upptök, festu og hreyfingu þeirra.. Mjög spennandi svo það þýðir ekkert annað en að fara að byrja að læra og hætta þessu kæruleysi!! Lærði litun í morgun sem fór bara vel, stelpan varð bara voðalega fín eftir allt saman.. Lærði líka herða nudd í morgun sem er svolítið flókið finnst mér en það þýðir sko ekkert að væla yfir því, fáum bara þennan eina tíma og svo bætist andlitsnuddið við í næsta tíma þannig að það er ekkert slór, leti né elsku mamma.. Æfingin skapar meistarann ekki satt 
Ég flyt úr íbúðinni fyrir mánaðarmótin næstu, hvert veit ég ekki ennþá en við Elva erum á fullu að leita okkur að íbúð til að búa í þannig að það verður spennandi hvað verður úr því 
-Berglind kveður! Og það eru sko fullt af fólki sem virðist droppa hér inn og það er skylducomment á manninn..
Í fréttum er þetta helst..
Já fínt, já sæll, já fínt.. Hvar hefur þú verið að smíða geimflaugar? Já sææælll, nú er ég komin í menninguna.. Búin að vera dugleg að horfa á næturvaktina og skil loksins hvað fólk er að meina í þessu samfélagi, eigum við að ræða það eitthvað ?
Allt gott að frétta af mér.. Ég er bara hress og kát þessa dagana enda get ég eiginlega ekki annað.. Á svo yndislegt fólk í kringum mig sem ég elska útaf lífinu !! Skólinn bara búinn að vera skemmtilegur og fór ég í fyrsta prófið mitt í dag og held að ég hafi bara staðið mig mig prýði enda afbragðs námsmaður hér á ferð.. Held að það sé samt strembin önn frammundan og mikið að meðtaka fyrir lítinn heila einsog minn en það er þá nóg space í bumbunni fyrir restina..
Það er margt að gerast í íbúðarmálum, spennandi hvað verður úr því.. Get bara ekki beðið eftir að flytja eitthvert sem verður stutt í aðra staði.. Finnst ég svo útur hérna.. En það verður eflaust gaman hverskonar breytingar verða á því..
Ég er að fara til Vopnafjarðar á föstudaginn og hlakka agalega mikið til !! Það er svo þorrablót á laugardaginn og verður það án efa gaman.. Verst að pjásurnar mínar ætla ekki en það reddast vonandi, verð bara með þær í beinni.. !
Veðrið er hreint út sagt viðbjóður, brjálað rok og rigning.. En kisa hefur hemil á þessu hún passar mig þessi elska.. En hafiði pælt í einu, að þegar að þið keyrið framhjá sumum ljósastaurum að þá kviknar eða slökknar á honum akkurat þegarað þið nálgist hann.. Mér finnst þetta ekki sniðugt.. Þetta er alltaf að koma fyrir mig, held bara hreinlega að það búi draugur í staurnum hérna í götunni..
Ég er farin að standa sjálfan mig að verki oft og mörgum sinnum sem ekki ég.. Hmm, hvernig hljómaði þessi setning eiginlega hehe ? En það sem ég ætlaði að segja er að þegar að ég er komin útí umferðina einsog í morgun þegar að ég var að skutla Karitas í rútuna og ég er að segja ykkur það að það var röð ALLA helvítis leiðina!! Ég var bara orðin einsog snargeðveikur borgarbúi því ég var svo pirruð í skapinu.. En við náðum samt réttsvo á réttum tíma og þá búnar að vera 45 mín á leiðinni !!
Jæja, ég er farin að sofa.. Þarf líka að vakna snemma til að fara í ræktina ehe..
Góða nótt dúllurnar mínar..
Ps. Er búin að bíða í margar mínutur eftir að setja 2 klikkaðar myndir af okkur Elvu H á myspace þar sem við erum sætar og fínar í göngutúr í blíðskaparveðri með hund í annarri og hestaskít í hinni og þær komu ekki.. Þannig að það verður ekkert fallegt sem skartar þetta blogg..
Boring blogg..
Sælt veri fólkið..
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.. Það samanstóð af góðum og slæmum hlutum..
Góðu hlutina geymir maður og slæmu hlutina gleymir maður ![]()
Jólin voru alveg frábær hjá mér og var eintóm gleði hér á bæ, bara búin að vera einsog prinsessa
hérna í firðinum.. Jólin samanstóðu af miklu áti og leti.. Bara gott sko.. Spiluðum líka og áttum
alveg frábærar stundir saman sem er bara best í heimi ;) Jólabumban er líka farin að lýta dagsins ljós ![]()
Annan í jólum var svo gleði á barnum, Yxna hélt uppi stuðinu.. Ég varð að vísu aðeins of ölvuð þetta
kvöld og man ekki eftir gleðinni en fréttir herma að ég hafi bara skemmt mér ljómandi vel þangað til
ég varð "lasin".. Ræðum það ekkert meir.. Dagurinn eftir þetta djamm var ekki eins dásamlegur og hjá
mörgum.. Ég var LASIN, múkkaði til 11 um kvöldið.. EN ég hafði samt hjúkkur hérna á heimilinu sem hugsa
svo vel um mig, hehe.. Var samt ekki hrifin þegar að pabbi kom með kók glas til mín og var búinn að lauma
í það viskí, koníaki eða einhverjum anskota.. Hefði átt að æla á gamla þá.. Og hann hló bara..
Letin á milli jóla og nýárs var óbærileg, næstum komin með legusár og er búin með serí af One tree hill og
byrjuð á næstu.. Ég er gjörsamlega orðin límd við tölvuna mína (komin með nýja ógeðslega flott nananana) og lifi mig svo inní þessa þætti að stundum er ég vælandi yfir þeim, how sad can i be..
Áramótin riðu svo í garð og voru bara ágæt þetta árið.. Fyrsta skiptið sem það er ekkert ball hér heldur bara opinn barinn og að mér sýndist flest fólk vera orðið svo latt hérna að það sást varla hræða yfir 25 ára hérna úti.. En það var samt alveg tonn af fólki í party og allt var þetta voða fínt og ég skemmti mér ágætlega, var mjög hófleg í drykkjunni ![]()
Nú er árið 2008 gengið í garð og held ég að þetta verði bara gott ár, vonandi ríkt af hamingju og gleði.. Skólinn verður vonandi mjög skemmtilegur og svo flyt ég í nýja íbúð og allt að gerast bara.. Get ekki beðið eftir að sjá sætu kisuna mína ef Anna týmir að láta hana frá sér ! Ég fer suður á þriðjudaginn og byrja svo að vinna um kvöldið, miðvikudagurinn fer í töflubreytingu ef þess þarf og svo byrjar skólinn á fimmtudaginn.. I can't wait.. 
- Berglind róni-
JAHÉRNAHÉR..
Fór til Guðbjargar í gær ásamt Elvunum og Helgu.. Þar spiluðum við og drukkum.. Sumir aðeins of mikið.. Ég man ekki meir af kvöldinu.. Fór samt niðrá bar og ældi útum allt, dansaði víst smá og svo kom pabbi að ná í mig.. FRÁBÆRT.. !!
Dagurinn í dag er líka búinn að vera yndislegur.. Er búin að vera með hausinn bókstaflega OFANÍ fötu.. Svo er ég með kúlu á enninu, marin á hendinni, lærinu, rassinum og illt í annarri öxlinni.. Hvernig er eiginlega farið með mann..
SVONA ER LÍFIÐ YNDISLEGT GOTT FÓLK !
ÍHA!!!
ÉG ER KOMIN INN Í VERKLEGA SNYRTIFRÆÐI EFTIR ÁRAMÓT..
EINKANNIRNAR VORU BARA FÍNAR..
EFN 123 9
LOL 203 7
SKY 101 9
STÆ 122 8
ENS 212 7
MYN 152 8
OG STÓÐST BÁÐA ÍÞRÓTTAÁFANGANA.
ÞANNIG AÐ NÚ ÞURFA ALLAR DÖMUR LANDSINS AÐ BJÓÐAST TIL AÐ VERA TILRAUNADÝR Í HINUM ÝMSU GREINUM.
BERGLIND KVEÐUR MEÐ BROS Á VÖR ;D
